daCoda ehf. hefur frá upphafi sérhæft sig í þróun og forritun vefhugbúnaðar. Í því felst að hanna hugbúnað í samráði við viðskiptavini, sem sniðinn er að þeirra þörfum.
Forritunar- og merkjamál sem starfsfólk daCoda ehf. hefur mikla þekkingu af eru m.a.:
Microsoft.NET (C# / VB)
ASP/VBScript
PHP
Javascript
HTML/XHTML
CSS
XML/XSLT
ActionScript (Macromedia Flash)
Í ferli hugbúnaðarþróunar eru fjórir meginþættir sem teknir eru fyrir.
1. Þarfagreining og flæðirit
Í samráði við viðskiptavininn skrifum við kerfislýsingu fyrir hugbúnaðinn og skilgreinum markmið og tilgang hugbúnaðarins.
2. Hönnun hugbúnaðar
Forritarar taka við og hanna alla hluti hugbúnaðarins og undirbúa til forritunar. T.d. eru teiknaðar skjámyndir, útlitshönnun og hönnun gagnagrunna.
3. Forritun
Í þriðja þrepi snýst allt um sjálfa forritunina. Við forritunina eru hafðar til hliðsjónar kerfislýsing verkefnisins ásamt þeim gögnum sem útbúin voru í 2. þrepi.
4. Prófanir
Að lokum fara í gang prófanir á hugbúnaðinum, jafnt innan húss sem utan. Hugbúnaðurinn er prófaður við misjafnar aðstæður og niðurstöðum úr prófunum skilað til forritara. Nauðsynlegar lagfæringar eru gerðar ef með þarf og þar með er hugbúnaðurinn tilbúinn til dreifingar.