ForsíðaPrentaMinnka leturStækka letur
daCoda CMS

daCoda CMS er viðhaldskerfi fyrir innri og ytri vefkerfi fyrirtækja og stofnana. Kerfið kom á markaðinn árið 2001 og hefur frá því verið í stöðugri þróun til dagsins í dag. Með dyggri hjálp viðskiptavina hefur okkur tekist að smíða kerfi sem er sérstaklega hannað með það að leiðarljósi að nýir notendur eigi auðvelt með að tileinka sér vinnubrögð í kerfinu. Frá því sala á daCoda CMS hófst hafa viðtökur verið vonum framar.

Viðskiptavinir sem nota kerfið þurfa ávalt að vera Internettengdir og vinna á kerfinu í gegnum hefðbundinn vafra. Þetta hefur þann kost í för með sér að hægt er að vinna í kerfinu hvar sem er í heiminum, og ekki þarf að gera neinar sérstakar ráðstafanir á tölvunni sem ætlað er að vinna með kerfið.

Kerfið er ætlað að halda utan um allt efni sem miðla á til starfsmanna/viðskiptavina um innri/ytri vef. Hægt er á einfaldan hátt að samnýta upplýsingar fyrir bæði svæðin eða jafnvel fleiri miðla s.s. snertiskjái, CD-ROM eða farsíma. Innifalið í kerfinu er mjög öflug notendastýring, sem gerir kerfisstjóra kleift að gefa einstökum notendum réttindi á einstaka hluti, jafnframt því að geta fylgst nákvæmlega með hverri aðgerð hjá öllum notendum.

Kerfið heimilar notendum að búa til sínar eigin fyrirspurnir í gagnagrunna. Jafnframt geta þeir sem til þekkja smíðað ný sniðmát í sérstökum hönnunarhluta eða með sínum eigin HTML kóða.

Við hjá daCoda ehf. erum stoltir af því að mörg hundruð fyrirtæki hafa kosið að nota daCoda CMS til að sinna sinni vefumsjón.

Starfsfólk  daCoda ehf. er þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu, því við vitum hvað vefurinn skiptir viðskipavininn miklu máli.
Innifalið í grunnútgáfu af  daCoda CMS eru eftirtaldir hlutir sem nýtast öllum, s.s. síðu- og veftréskerfi, myndasafn, skráarsafn, fréttakerfi, sniðmátskerfi, notendastýringar, ruslakarfa og saga . Að auki er hægt að fá margar viðbætur við kerfið þar sem hver og einn velur það sem honum hentar.

Viðbætur

Dagatal

Dagatalsviðbótin er notuð sem dagbók þar sem hægt er að skrá inn ákveðna viðburði og láta þá birtast á vefsíðu á fyrirfram ákveðnum tíma. Þannig væri t.d. hægt að setja upp matseðil í mötuneyti, langt fram í tímann og starfsmenn gætu þannig séð með löngum fyrirfara hvað er í matinn á tilteknum degi.

Skoðanakönnun

Skoðanakannanir eru að verða sívinsælli á vefsíðum. Með skoðanakannanaviðbótinni er hægt að hafa eina eða fleiri spurningar í gangi á mismunandi undirsíðum eða jafnvel forsíðu. Hægt er að ráða hvort niðurstöðurnar birtast á vefsíðunni eða hvort umsjónarmaður vefsins getur aðeins séð niðurstöðuna.

Póstlisti

Með póstlistaviðbótinni geta gestir vefsíðna skráð sig á þar til gerða póstlista. Um leið og viðkomandi gestur skráir sig, er hægt að gefa honum möguleika á að fá senda upplýsingar um einhver ákveðin atriði frá fyrirtækinu, s.s. tilboð, nýjar vörur eða þjónustu o.fl. Notendur geta síðan flokkað þá sem hafa skráð sig eftir ýmsum forsendum, s.s. aldri, heimilisfangi, kyni o.s.frv. og sett þannig markpósta á afmarkaðan hóp.
Þegar notast er við tölvupóst og póstlista í markaðsstarfi er mikilvægt að hugbúnaðurinn sem notast er við sé góður. Hinsvegar er ekki síður mikilvægt að pósturinn sjálfur og skilaboðin, sem eru hönnuð og send út, séu uppbyggð með það að markmiði að ná sem allra mestri svörun, t.a.m. í formi aukinnar sölu. Ef þú ætlar að markaðssetja vöru/þjónustu til viðskiptavina að einhverju leyti með tölvupósti er þetta eitthvað sem þú ættir ekki að láta fram hjá þér fara. Með því að nota réttu aðferðirnar má spara bæði tíma og fjármagn sem og auka árangur.

Tölvupóstkort

Til að lífga uppá vefsíður er skemmtilegt að bjóða uppá þann möguleika að senda tölvupóstkort myndskreytt með myndum af vörum eða þjónustu frá þínu fyrirtæki. Með tölvupóstkortaviðbótinni er hægt að setja inn ótakmarkaðan fjölda póstkorta sem gestir vefsins geta síðan valið úr til að senda vinum og/eða ættingjum.

Starfsmannahald

Til að halda utan um alla starfsmenn og upplýsingar tengdar þeim kemur starfsmannahaldsviðbótin sér að góðum notum. Þú slærð inn allar upplýsingar um starfsmenn. Oft getur verið um persónulegar upplýsingar starfsmanna að ræða og því nauðsynlegt að geta sigtað út upplýsingar á innri vef sem ekki mega sjást á ytri vef. Allt er þetta hægt með starfsmannahaldsviðbótinni.

Auglýsingakerfi

Fyrir þá sem nota vefinn mikið til að birta auglýsingar er þessi viðbót algert nauðsyn. Með auglýsingakerfinu er hægt að hlaða inn auglýsingum, ákveða staðsetningu, tímabil sem auglýsing er virk og fylgjast með hversu oft smellt hefur verið á viðkomandi auglýsingu.

Rafrænt eyðublaðakerfi

Þessi viðbót gefur notendum möguleika á að búa til sín eigin eyðublöð, t.d. starfsumsóknir, skráning í leiki, umsóknir um styrki o.s.frv. Notandi getur stillt hvernig hann vill fá upplýsingar úr eyðublaðakerfinu, hægt er að fá þær sendar í tölvupósti eða skrá þær í gagnagrunn til úrvinnslu síðar.

Spjallþræðir

Spjallþræðir verða vinsælli með hverjum deginum. Með spjallþráðaviðbótina í farteskinu getur þú haldið uppi fjörugum og lifandi spjallvef með lítilli fyrirhöfn.

Spurt og svarað (FAQ)

Í FAQ viðbótinni getur umsjónarmaður skráð inn algengar spurningar og svör við þeim. Þessar spurningar og svör er svo hægt að birta á vefsíðunni sjálfri sem lista og einnig er hægt að leita í þessum upplýsingum.

Fasteignaviðbót

Fyrir fasteignasölur sem nota daCoda CMS bjóðum við viðbót sem býður uppá tengingu við fasteignasölukerfi þeirra. Þannig er hægt að birta söluskrá fasteignasölunnar á netinu með leitarmöguleikum og fleira til, allt samkvæmt þörfum fasteignasölunnar.

Vefverslun

Vefverslun daCoda inniheldur alla helstu öryggisstaðla til þess að verslun á Internetinu fari sem öruggust fram. Mikil aukning hefur átt sér stað í verslun á Internetinu.

Hafðu samband við söludeild daCoda ehf. og fáðu nánari upplýsingar. Beinn sími er 555 7520 og netfangið er sala@dacoda.is