daCoda CMS
vefumsjónarkerfi
daCoda CMS er vefumsjónarkerfi fyrir innri og ytri vefkerfi fyrirtækja og stofnana. Kerfið kom á markaðinn árið 2001 og hefur frá því verið í stöðugri þróun til dagsins í dag. Með dyggri hjálp viðskiptavina hefur okkur tekist að smíða kerfi sem er sérstaklega hannað með það að leiðarljósi að nýir notendur eigi auðvelt með að tileinka sér vinnubrögð í kerfinu. Frá því sala á daCoda CMS hófst hafa viðtökur verið vonum framar.
» Nánar um daCoda CMS - vefumsjónarkerfi
Markaðssetning og þarfagreining
Hjá daCoda stafar öflugur hópur fólks sem sérhæfir sig í markaðssetningu og þarfagreiningu á vefjum. Það skiptir okkur máli að okkar þjónusta skili mælanlegum árangri og ánægðum viðskiptavinum.
daCoda hefur þjónustað fjölda fyrirtækja og stjórnsýslur með heildarþjónustu á sviði veflausna.
» Nánar um markaðssetningu og þarfagreiningu
Sérforritun
daCoda ehf. hefur frá upphafi sérhæft sig í þróun og forritun vefhugbúnaðar. Í því fellst að hanna hugbúnað í samráði við viðskiptavini, sem sniðinn er að þeirra þörfum.
» Nánar um sérforritun
Vefhýsing
daCoda ehf. hýsir vefi og vefkerfi af öllum stærðum og gerðum. Boðið er upp á vefhýsingu á Windows og Linux netþjónum.
Með hágæða netþjónum og stöðugri nettengingu við alheiminn tryggjum við viðskiptavinum okkar hámarksuppitíma og stöðugleika. Netþjónar eru vaktaðir allan sólarhringinn og afrit tekin daglega af öllum gögnum.
» Nánar um vefhýsingu