Almennt
Dacoda ehf. er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki með sérþekkingu á upplýsingatækni og þróun veflausna fyrir innlendan og erlendan markað. Dacoda var stofnað í byrjun árs 2002 og þótt fyrirtækið sé ungt að árum þá hefur það markað skýra stefnu og byggir á traustum grunni. Markmið Dacoda hefur frá upphafi verið að vinna að hagnýtum hugbúnaðarlausnum fyrir Internetið og veita viðskiptavinum trausta og góða þjónustu.
Hjá Dacoda starfar fagfólk á öllum sviðum hugbúnaðargerðar, ráðgjafar og upplýsingatækni. Starfsfólkið býr yfir haldgóðri þekkingu á vefumhverfinu, hvort sem um ræðir forritun, þarfagreiningu, útlitshönnun eða upplýsingaöflun.
Viðskiptavinir
Viðskiptavinir okkar koma úr ýmsum ólíkum geirum atvinnulílfsins, stór og smá fyrirtæki sem og margar stofnanir, nota Dacoda CMS vefumsjónarkerfið með góðum árangri. Notendamiðuð hönnun Dacoda CMS gefur viðskiptavinum okkar kost á að annast sjálfir daglega umsýslu sinna vefja, sem eykur til muna alla hagkvæmni bæði hvað varðar tíma og kostnað. Það sem viðskiptavinir okkar eru hvað ánægðastir með er persónuleg og ábyggileg þjónusta í takt við stuttan viðbragðstíma. Starfsmenn Dacoda hafa það að leiðarljósi að bera hag viðskiptavinarins fyrir brjósti og setja hann ávallt í fyrsta sæti.
Hér er hægt að skoða nokkrar heimasíður viðskiptavina okkar: