Nýr starfsmaður genginn til liðs við daCoda
8. september 2006
Nýr starfsmaður er genginn til liðs við daCoda ehf. Heitir hann Ómar Ragnarsson og er 21 árs gamall. Ómar útskrifaðist af tölvunarbraut á FS og stefnir á frekara nám með vinnu í framtíðinni. Ómar hefur forritað í C# frá því það leit dagsins ljós og er algjör sérfræðingur í Flash vinnslu.
« Til baka
|