ForsíðaPrentaMinnka leturStækka letur
Fréttir

Reykjanesbær opnar nýjan vef í Dacoda CMS

19. maí 2011

Í dag var nýr og endurbættur vefur Reykjanesbæjar opnaður. Vefurinn er sá fyrsti sem er opnar í Dacoda CMS 4 sem er ný útgáfa af vefumsjónarkerfi Dacoda.

Að endurbótunum koma fjögur fyrirtæki sem öll eru af Suðurnesjum en þau eru Kosmos & Kaos, Netsamskipti, Dacoda og Ýmir Mobile. Samstarfið hefur tekist einstaklega vel og eru vonir bundnar við að efla það enn frekar á þessum vettvangi.

Nýtt útlit vefsins miðar að því að gera hann notendavænni og auðvelda aðgang að upplýsingum auk þess sem magn og fjölbreytni upplýsinga hefur verið aukið. Má þar nefna betri tengingu við samfélagsmiðla, upplýsingar um þjónustu á korti og ítarlegra viðburðadagatal.

« Til baka