Tveir Dacoda vefir tilnefndir
27. janúar 2009
Tveir vefir viðskiptavina Dacoda hafa verið tilnefndir til Vefverðlauna Samtaka vefiðnaðarins 2008 ,en þau verða veitt í Listasafni Reykjavíkur 30. janúar næstkomandi. Um er að ræða vef Bláa lónsins www.bluelagoon.com og vef Marel hf. www.marel.com og eru báðir tilnefndir í flokknum „Besti fyrirtækjavefurinn". Vefirnir sem þeir keppa við í þessum flokki eru vefir Ísafold Travel, Símans og Póstsins.
Starfsmenn Dacoda eru að vonum hæstánægðir með þennan árangur og óska Bláa lóninu og Marel til hamingju með tilnefninguna.

« Til baka
|