Liposan í loftið
14. ágúst 2008
Nýjum vef www.liposan.com hefur verið hleypt af stokkunum hjá Dacoda. Um er að ræða vef á vegum fyrirtækisins Primex ehf. á Siglufirði, en Liposan er eitt helsta vörumerki fyrirtækisins, en það er fæðubótarefni sem hefur gefið góða raun við þyngdarstjórnun.
Primex ehf er þekkingarfyrirtæki og leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á afurðum úr kítósan og kítin, sem eru efni unnin úr sjávarfangi, s.s. rækjuskel. Fyrirtækið rekur kítósanverksmiðju á Siglufirði og er einnig með stöðvar í Bandaríkjunum og Hollandi. Heimasíða Primex er www.primex.is en nýr vefur fyrirtækisins er einnig í vinnslu hjá Dacoda og mun líta dagsins ljós á næstu vikum.
« Til baka
|