ForsíðaPrentaMinnka leturStækka letur
Fréttir

Verkbeiðnakerfi tekið í notkun

18. febrúar 2008

Með bætta þjónustu að leiðarljósi höfum við hjá Dacoda tekið í notkun nýtt verkbeiðnakerfi . Þetta nýja fyrirkomulag byggir á því að beina helstu samskiptum  við viðskiptavini okkar sem lúta að verkbeiðnum og aðstoð, frá símanum og yfir í samskipti í gegnum vefinn.

Þetta nýja fyrirkomulag snýst um að verkbeiðnir séu settar fram skriflega og sendar á viðeigandi stað þar sem  við veitum þeim viðtöku og komum í vinnslu. Við viljum hvetja viðskiptavini okkar  til að fara inn á notendasíðu kerfisins http://support.dacoda.is kynna sér málið og næst þegar aðstoðar er þörf  að senda beiðni af þessari síðu. Einnig er hægt að senda beiðnir á netföngin adstod@dacoda.is  (fyrir aðstoð) og sala@dacoda.is (fyrir beiðnir tengdar sölumálum). Þegar beiðni hefur verið send skráist netfang viðkomandi á beiðnina og honum verður sent lykilorð til baka, sem hann síðan getur notað til að fylgjast með stöðu beiðninnar og þeirra beiðna sem  framvegis verða sendar úr sama netfangi.

Það er trú okkar að með þessum hætti getum við gert góða þjónustu okkar enn betri og sinnt þörfum viðskiptavina okkar eins vel og kostur er.
Helstu kostir fyrir viðskiptavini:


• Betri yfirsýn yfir verkefni og stöðu verkefna
• Skjótari afgreiðsla verkefna
• Verkefni skrást í tímaröð og er því alltaf sinnt samkvæmt því
• Minni hætta á að beiðnir misskiljist
• Með skriflegum beiðnum er ferill verkefna vistaður og hægt að fletta upp síðar


Það er því eindregin ósk okkar að viðskiptavinir okkar nýti sér verkbeiðnakerfið til að koma beiðnum sínum á framfæri við okkur og hjálpi okkur þannig að vinna að bættri þjónustu öllum viðskiptavinum okkar til heilla.

 

Starfsfólk Dacoda

« Til baka